Aukinn þrýstingur á EES ríkin að innleiða reglugerðir og tilskipanir

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur nú æ meiri áherslu á að EES-ríkin, aðallega Noregur og Ísland, innleiði og taki upp í löggjöf þær reglugerðir og tilskipanir (gerðir) sem ríkjunum er skylt að gera samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.Þrýstingur á þetta hefur ítrekað komið fram á fundum þingmanna EES ríkjanna og embættismanna, nú síðast á fundi sameiginlegu þingmannanefndarinnar sem kom saman í Lichtenstein síðasta föstudag og átti meðal annars viðræður við háttsettan fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar.„Það kom skýrt fram í máli hans, að þol framkvæmdastjórnarinnar gagnvart seinagangi EES ríkjanna hvað þetta varðar er að minnka verulega,“ sagði Grímur Grímsson þingmaður sem fer fyrir nefndinni. „Skilaboð þessa embættismanns var að EES ríkin þyrftu að herða sig, ekki síst hv
Aukinn þrýstingur á EES ríkin að innleiða reglugerðir og tilskipanir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd