Stefnt er á að hleypa umferð á nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót í júní. Vonir höfðu staðið til þess að vegurinn yrði tilbúinn fyrir síðustu áramót.Með nýrri leið um Hornafjörð og yfir Hornafjarðarfljót styttist hringvegurinn um 12 kílómetra. Kynnt var um mitt síðasta ár að vegurinn yrði opnaður fyrir áramót en enn á eftir að leggja klæðingu á hluta vegarins og vonast var til þess að hægt yrði að klára það í vor.G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir orðið útséð með að vegurinn verði tilbúinn í maí en vonast til þess að það verði í júní. „En hvenær í júní er erfitt að segja til um.“„Það á bara eftir að ljúka verkinu í raun og veru. Það bættist við hringtorg sem er núna nýlega búið að malbika seinna lagið á, á seinni stigum. Það hefur ýtt verklokatímanum aftur. Síðan