Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fráfarandi borgarstjóri, segist hafa fengið morðhótanir meðan hún gegndi störfum borgarstjóra.Þessu greindi hún frá í viðtali við Vísi eftir síðasta fund fráfarandi borgarstjórnar.„Á þessu eina og hálfa ári hefur maður fengið morðhótanir og alls konar fólk sem er á eftir manni og það er kannski ekki það sem mann langar til að fólk þurfi að upplifa sem tekur þetta að sér.“Heiða Björg sagðist hafa fengið alls konar hótanir. Hún hefði á tímabilum verið með aukna gæslu, líkt og fleiri borgarstjórar hefðu þurft. Hún sagðist vona að næsti borgarstjóri þyrfti ekki að fara í gegnum sams konar elda og síðustu borgarstjórar.Á þarsíðasta kjörtímabili voru unnar skemmdir á bíl Dags B. Eggertssonar, þáverandi borgarstjóra, og voru tveir menn