Það tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki aðeins fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Það þekkir Helga Guðmundsdóttir sem hefur barist fyrir lífi dóttur sinnar undanfarin ár eða allt frá því hún var tíu ára gömul þegar hún varð fyrst fyrir einelti af hálfu skólabróður. Hún er núna átján ára.„Hún varð fyrir miklu einelti og ég hélt að það ætti að vera eineltisteymi í gangi og reyna að vinna á móti þessu og hjálpa henni, vera með einhverjar áætlanir en það gerðist í rauninni ekkert. Það var strákur sem var að hamast á henni, oft daglega, og þetta setti hana alveg úr skor