Landhelgisgæslan notar dróna við eftirlit á hafinu

Dróna verður flogið frá Hornafjarðarflugvelli næstu mánuði til að sinna margvíslegum verkefnum fyrir Landhelgisgæsluna. Fyrirhugað er að hann nýtist við löggæslu, leit og björgun og mengunareftirlit. Þetta er í þriðja sinn sem Landhelgisgæslan notar dróna til eftirlits á hafsvæðinu við Ísland. Nú, eins og í fyrri skipti, er það gert í samstarfi við EMSA, Siglingaöryggisstofnun Evrópu. Evrópusambandið fjármagnaði verkefnið. Auk Landhelgisgæslunnar eiga Samgöngustofa, Isavia, Avians og tollasvið Skattsins aðkomu að drónafluginu. Dróninn er af gerðinni Tekever AR5. Það verður reyndar ekki bara einn dróni til staðar á Hornafjarðarflugvelli í sumar. Þeir verða tveir. Annar er ætlaður til eftirlits en hinn til vara ef sá fyrri verður ónothæfur.
Landhelgisgæslan notar dróna við eftirlit á hafinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd