„Þetta er búið að vera gríðarlega þungbært, bæði fyrir okkur og viðskiptavini okkar. Við höfum selt fjölda landbúnaðartækja til bænda og það er mjög íþyngjandi gullhúðun sem þarna er í gangi,“ segir Friðrik Ingi Friðriksson, framkvæmdastjóri Aflvéla, en fyrirtækið selur m.a. margvísleg landbúnaðartæki til bænda.