Læknar nær einráðir á lista þeirra launahæstu

Læknar eru 89 prósent þeirra 250 starfsmanna, embættismanna og kjörinna fulltrúa sem fá hæstar launagreiðslur úr ríkissjóði. Þetta sýnir samantekt Fjársýslunnar sem hún vann að beiðni efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.Hæstu mánaðarlaun starfsmanna ríkisins voru á sjöundu milljón króna að meðaltali á tímabilinu frá apríl í fyrra til mars í ár. Miðað er við heildarlaun og því geta aukastörf hjá ríkinu haft áhrif, svo sem þegar starfsmenn á einum stað vinna líka við kennslu.Efnahags- og viðskiptanefnd óskaði upplýsinga um heildarlaunagreiðslur þeirra 250 sem fá hæstar launagreiðslur frá Fjársýslunni. Sú beiðni var hluti af vinnu nefndarinnar við frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytt viðmið á uppfærslu launa kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna.Samantektin leiðir í ljós að
Læknar nær einráðir á lista þeirra launahæstu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd