Árásir á heilbrigðisstarfsmenn og sjálfboðaliða í Austur-Kongó hafa gert störf þeirra hættulegri og erfiðari. Tortryggnir og óttaslegnir íbúar hafa kastað grjóti í sjálfboðaliða sem reyna að vekja athygli á faraldri ebólu sem lýst hefur yfir á svæðinu og þá stafar þeim einnig ógn af víga- og glæpahópum sem hafa myrt þúsundir og stökkt gífurlegum fjölda á flótta á undanförnum árum.