Persaflóaríki ekki lengur skjöldur fyrir herstöðvar

Mojtaba Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, sagði í dag að Bandaríkjamenn geti aldrei aftur notað ríkin við Persaflóa sem skjól fyrir herstöðvar sínar. Þetta sagði hann í skriflegri yfirlýsingu sem fjölmiðlar greindu frá. Khamenei hefur ekki sést opinberlega síðan hann tók við embætti af föður sínum sem var drepinn í árásum Bandaríkjamanna og Ísraela í upphafi stríðsins.Íranski byltingarvörðurinn sagðist í dag hafa skotið niður bandarískan dróna og skotið að bandarískri herþotu sem reyndi að komast inn í íranska lofthelgi. Ekki kom fram hvenær það hefði gerst. Bandaríkjamenn sögðust í gær hafa ráðist á íranskar eldflaugastöðvar.Mojtaba Khamenei hefur ekki sést opinberlega.EPA / ABEDIN TAHERKENAREH
Persaflóaríki ekki lengur skjöldur fyrir herstöðvar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd