Fargjöld í almenningssamgöngum í Svíþjóð lækka um helming seinni hluta árs. Ríkisstjórnin tilkynnir áform sín í þessa veru í dag en sænskir fjölmiðlar greindu frá þeim í gær.Sænska ríkisstjórnin ætlar að niðurgreiða almenningssamgöngur um 6,5 milljarða sænskra króna, andvirði 86 milljarða íslenskra króna, frá 1. júlí til áramóta. Markmiðið er að gera ferðirnar ódýrari til að vega upp á móti olíuverðshækkunum vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraela við Írana. Stjórnvöld höfðu áður lækkað skatta á eldsneyti.Að sögn sænskra fjölmiðla munu þarlendir ráðamenn leggja áherslu á það í kynningu á aðgerðunum að þær geri fólki kleift að komast til og frá vinnu með minni tilkostnaði en áður.