Hlynnt því að framhaldsskólar hefjist ekki of snemma

Mennta- og barnamálaráðherra telur það koma vel til greina að upphaf skóladags í framhaldsskólum sé sveigjanlegra en nú er.Þetta kemur fram í svari Ingu Sæland við fyrirspurn Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um upphaf skóladags í framhaldsskólum. Þar segir að ráðherra hafi ekki átt formleg samtöl, eða unnið greiningar vegna þess möguleika að seinka upphafi skóladagsins. Ráðuneytið hafi þó stutt við verkefni embættis landlæknis og vísar í handbók um geðrækt í framhaldsskólum sem embættið gefur út.Þar kemur meðal annars fram að samkvæmt bandarískum rannsóknum verði nætursvefn ungmenna betri ef upphafi skóladags er seinkað. Unglingar fari áfram að sofa á sama tíma á kvöldin, en fá lengri nætursvefn fyrir vikið. Mæting nemenda batnaði, dagsyfja og einkenni þunglyndis minnkuðu
Hlynnt því að framhaldsskólar hefjist ekki of snemma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd