Hefur íslensk tónlist séreinkenni? Hvernig er íslensk tónlist?Vegleg sýning um heim íslenskrar tónlistar verður opnuð í sumar og fjöldi fagfólks hefur komið að henni.Axel Hallkell Jóhannesson sýningarhönnuður, einnig þekktur sem Langi Seli, gekk með hugmyndina lengi vel. „Í stað þess að gera tónlistarsafn vildum við skapa íslenskan hljóðheim og skoða hvað mótaði tónlist á þessu landi.“Feðgarnir Þórarinn og Úlfur Eldjárn sömdu hljóðleiðsögn sýningarinnar og tónlistarskor henni til stuðnings. Söguleiðsögn Þórarins er lifandi og fróðleg. „Hér var engin tónlist við landnám og því engin klassísk tónlistarhefð til staðar líkt og víða í Evrópu“.Með tæknilegri framsetningu ganga gestir um tímans rás og finna innblástur frá náttúru og hvernig stórviðburðir þjóðlífsins mótuðu tónlistina.