Ský eða skúrir verða í boði víðast hvar á landinu í dag og nokkur blástur. Veðurstofan spáir vestan og suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu. Skúrir, en skýjað með köflum á Austurlandi og Austfjörðum. Hægari breytileg átt annað kvöld. Hiti 7 til 15 stig að deginum, hlýjast austanlands.Veðurhorfur næstu daga:Suðvestanátt með dálítilli vætu, en úrkomulítið austanlands. Hiti 7 til 14 stig. Norðaustanátt með rigningu á fimmtudag en slyddu eða snjókomu til fjalla fyrir norðan. Kólnandi veður, einkum norðanlands. Síðan útlit fyrir austanátt, rigning syðst og austast, en yfirleitt þurrt annars. Fremur kalt á Norðaustur- og Austurlandi en milt sunnan- og vestanlands að deginum.