Sprunga fundin og hluti íbúanna fær að snúa aftur heim til sín

Íbúi sem þurfti að yfirgefa heimili sitt vegna yfirvofandi sprengjuhættu þiggur veitingar hjá sjálfboðaliðum Rauða krossins í Fountain Valley.AP / Jill ConnellySprunga fannst á birgðatanki í Garden Grove í Kaliforníu og yfirvöld telja ekki lengur hættu á að tankurinn springi í loft upp þar sem dregið hefur úr þrýstingi og lekinn hefur stöðvast. Um 26. 000 lítrar af metýl-metakrýlati eru geymdir í tankinum, sem er mjög rokgjarnt og eldfimt efni.Lekans varð fyrst vart á fimmtudaginn og um 50.000 íbúar í næsta nágrenni þurftu að yfirgefa heimili sín af öryggisástæðum.Nú hafa 16.000 þeirra fengið að snúa aftur heim til sín. Hættan er þó ekki alveg liðin hjá og líklega þarf að tæma tankinn af varkárni áður en restin af íbúunum fær að snúa aftur heim til sín.
Sprunga fundin og hluti íbúanna fær að snúa aftur heim til sín

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd