Bandaríski herinn gerði árásir á skotmörk í suður Íran í gærkvöld. Einnig voru gerðar árásir á tvö skip sem voru að koma fyrir tundurduflum, samkvæmt talsmanni aðgerðarstjórnar Bandaríkjahers. Hann sagði að árásirnar hefðu verið gerðar í sjálfsvörn til að verja bandaríska hermenn gegn ógnum frá írönskum hermönnum en gaf ekki upp nánari upplýsingar.Samkvæmt IRIB heyrðust margar sprengingar við hafnarborgina Bandar Abbas nærri Hormússundi. Borgin er mikilvæg hafnarborg og íranski sjóherinn er einnig með herstöð þar. Ekki hafa borist fréttir af mannfalli í þessum árásum.Írönsk stjórnvöld hafa ekki brugðist við árásunum og það er óljóst hvort þær hafi áhrif á viðkvæmt vopnahlé sem hófst 8. apríl.Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem staddur er í opinberri heimsókn á Indlandi, sagði