Forseti Írans Masoud Pezeshkian tilkynnti í gærkvöldi að opnað verði fyrir Internetið í landinu, samkvæmt írönskum ríkisfjölmiðli. Lokað hefur verið fyrir Internet-samband í Íran nær alveg í 87 daga. Ekki er þó ljóst hvort búið sé að opna fyrir aðgang að netinu eða hvenær það verði gert en.Aðeins lítill hluti íbúa hefur aðgang að dýru og þróuðu sýndareinkaneti eða VPN, sem gerir notendum kleift að komast fram hjá netlokunum og ritskoðun stjórnvalda á vefsíðum.Fréttastofan Reuters greinir frá því að stjórnvöld hafi fyrst lokað á internet-sambandið 8. janúar þegar umfangsmikil mótmæli voru í landinu. Banninu var svo smám saman aflétt í febrúar en það sett á aftur þegar Ísraelar og Bandaríkjamenn hófu árásir á Íran 28. febrúar.Öllu jafna er aðgangur að netinu og mörgum vefsíðum takmarkaður í