Undirskriftarlistinn var settur af stað á Ísland.is í kvöld gegn nýjum meirihluta í Hafnarfirði. Skömmu eftir miðnætti voru komnar um 850 undirskriftir komnar á listann.Til stendur að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking í Hafnarfirði kynni meirihlutasáttmála á félagsfundum klukkan fimm síðdegis í dag, þriðjudag. Að loknum félagsfundum flokkanna verður blaðamannafundur í Hamranesi þar sem sáttmáli flokkanna þriggja verður undirritaður og kynntur.Undirskriftarlistinn er til stuðnings Framsóknarflokknum og Valdimari Víðissyni, fráfarandi bæjarstjóra. Í lýsingu undirskriftarlistans segir að undirritaðir mótmæli harðlega myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði því farið sé gegn skýrum vilja kjósenda sem kom fram í kosningunum og því sé verið að bregðast trausti kjósenda.Þá segir einnig að ma