Jarðskjálfti að stærðinni 6,9

Jarðskjálftar eru algengir í Chile. Vegir á Chiloe-eyju suður af Santiago í Chile eyðilögðust í jarðskjálfta þar 25. desember 2016. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / ALVARO VIDALJarðskjálfti að stærðinni 6,9 varð í norður Chile í gær. Skjálftinn átti upptök sín á um 100 km dýpi í Atacama-eyðimörkinni um 31 km frá borginni Calama. Ekki hefur verið tilkynnt um manntjón eða eyðileggingu á innviðum.Chile liggur á mörkum þriggja flekaskila svo jarðskjálftar eru algengir í Chile. Stærsti skjálfti sem sögur fara af varð í Validiva 1960 en sá var 9,5 að stærð. Árið 2010 varð skjálfti að stærðinni 8,8 út fyrir strönd Chile. Skjálftinn olli mikilli flóðbylgju og yfir 520 fórust.
Jarðskjálfti að stærðinni 6,9

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd