Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála féllst ekki á kröfu eigenda hunds um að ógilda ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um að aflífa skuli hund þeirra eftir að hann særði annan hund alvarlega.