Tveir unglingar í varðhaldi grunuð um morð á 11 ára dreng

Franskir lögreglumenn. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / MARTIN LELIEVRE / POOLTveir unglingar eru í varðhaldi eftir að 11 ára drengur fannst látinn í Rennes í Frakklandi í gær. Drengurinn fannst með blautt handklæði bundið um hálsinn á bökkum Vilaine-árinnar. Áður hafði verið greint frá því að drengurinn væri 12 ára.16 ára drengur var handtekinn heima hjá sér í gær og 15 ára stúlka var handtekin eftir að hún gaf sig sjálf fram við lögreglu, samkvæmt upplýsingum frá saksóknara í Rennes. Þau eru grunuð um að hafa myrt drenginn en sést hafði til þeirra með drengnum á svæðinu fyrr um daginn.
Tveir unglingar í varðhaldi grunuð um morð á 11 ára dreng

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd