Þriðjungur íbúa í Ituri-héraði í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, þar sem ebólufaraldurinn sem nú geisar átti upptök sín, telur ebólu ekki raunverulega, samkvæmt könnun alþjóðlegu hjálparsamtakanna Action Aid. Danska ríkisútvarpið DR greinir frá þessu. Aðeins 34 prósent svarenda gátu nefnt þrjár smitleiðir veirunnar.Sjálfboðaliðar Rauða krossins standa nú að fræðsluherferð um ebóluveiruna. Þeir ganga hús úr húsi í héraðinu, fræða og vinna gegn röngum upplýsingum. Sjálfboðaliðarnir útskýra fyrir fólki hvernig ebóla smitast og hvetja það til þess að leita sér læknishjálpar snemma komi einkenni fram. Þá er skilaboðunum einnig dreift með útvarpsþætti Rauða krossins. FÓLK REYNIR AÐ ENDURHEIMTA SMITUÐ LÍK ÁSTVINA Lögregla í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó skaut viðvörunarskotumn þegar h