Eitt áhugaverðasta kapphlaup hvers árs er ostahlaupið í Gloucestershire í Bretlandi, þar sem fólk sprettar niður snarbratta grasbrekku til að reyna að ná 3ja kílóa þungt oststykki sem er rúllað þar niður.Í ár voru sjö hlaup. Sigurvegarinn í karlaflokki í fyrsta hlaupi dagsins að þessu sinni er þýska samfélagsmiðlastjarnan Tom Kopke. Hann vann líka síðustu tvö ár.„Ef þessi brekka er helvíti, er ég djöfullinn sjálfur!“Hann var hlutskarpari en goðsögnin Chris Anderson sem vann hlaupið 23 ár í röð, milli 2002 og 2022, en hafði sest í helgan stein. Anderson byrjaði betur en Kopke var sterkari á endasprettinum.William, sonur Andersons, hélt þó uppi heiðri fjölskyldunnar og vann kapphlaup barna upp brekkuna.Hin franska Alix Heugas bar sigur úr býtum í kvennaflokki.Ostakapphlaupið í Gloucestershir