Margrét Þórhildur Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús í annað sinn á tveimur vikum. Í tilkynningu frá konungshöllinni segir að drottningin hafi verið lögð inn vegna blóðsöfnunar í mjöðm í kjölfar falls.Drottningin hafði aðeins verið útskrifuð í sex daga, en hún var lögð inn á sjúkrahús þann 14. maí með hjartaöng. Búist er við því að innlögnin vari „í einhverja daga“ í þetta sinn.Stór hluti konungsfjölskyldunnar tekur þátt í Royal Run-hlaupinu sem fer fram víða í Danmörku í dag.Tengdadóttir Margrétar, Mary Danadrottning, var þar á meðal og var spurð um ástand tengdamóður sinnar er hún kom í mark. Hún sagði drottninguna þegar hafa gengist undir aðgerð.„Auðvitað setur þetta smá strik í reikninginn, að einhverju leyti, en hún myndi ekki vilja að ég segði það,“ sagði Mary drottning v