Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hvetur lönd sem liggja að Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó til þess að grípa til tafarlausra aðgerða til að sporna gegn frekari útbreiðslu ebóluveirunnar.Í yfirlýsingu sem stofnunin sendi frá sér í dag segir að nágrannaríki Kongó séu í mikilli hættu vegna ebólufaraldursins sem þar geisar. Hann breiðist sérstaklega hratt út og geti valdið alvarlegum blæðingum og líffærabilun sem leitt geta til dauða.WHO hefur skráð tíu staðfest dauðsföll af völdum veirunnar frá 15. maí en grunur er um 220 dauðsföll til viðbótar sem ekki hafa verið staðfest. Einn hefur látist í Úganda, nágrannaríki Kongó, vegna veirunnar.AP / Moses Sawasawa