Kona á fimmtugsaldri var flutt á bráðamóttökuna í Fossvogi í gærkvöld eftir að hún missti meðvitund á lögreglustöðinni á Suðurnesjum. Konan var stöðvuð af tollgæslu grunuð um fíkniefnasmygl en missti meðvitund áður en lögregla gat yfirheyrt hana. Lögreglu grunaði að fíkniefnapakkning sem hún hefði innbyrt hefði rofnað, sem reyndist rétt.Þetta staðfestir Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum við fréttastofu.Vísir greindi fyrst frá.Jón Halldór segir grun um að efnin sem konan hafi reynt að smygla innvortis séu kókaín. Konunni heilsist vel eftir atvikum. Hún sé enn á sjúkrahúsi en hann búist við því að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir henni síðar í dag. MERKI UM AÐ TILFELLUM FARI FJÖLGANDI Konan er af erlendu bergi brotin og ekki búsett á Ísla