Metfjöldi útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands þetta árið og þurfti því að skipta nemendum í tvo hópa við athafnir sem fóru fram í Borgarleikhúsinu í gær. Alls settu 358 Verzlingar upp húfur sínar á laugardag og var fagnað í partíum um allt höfuðborgarsvæðið þar sem vinsælustu listamenn þjóðarinnar tróðu upp.