Tvö banaslys hafa orðið við fallhlífarstökk á undanförnum tveimur mánuðum í Danmörku. 37 ára danskur karlmaður lést í fallhlífarstökki í Holsterbro á dönsku eyjunni Læsø í gær en íslenskur karlmaður á tvítugsaldri lést í fallhlífarslysi á Fjóni í lok apríl. Danska ríkisútvarpið greinir frá. SEGIR DAUÐSFÖLL ÓALGENG Banaslys við fallhlífarstökk eru óalgeng að sögn danska fallhlífarstökkssambandsins. Skrifstofustjóri sambandsins, Nikolaj Larsen, segir að á þeim 14 árum sem hann hafi starfað hjá sambandinu hafi orðið fjögur banaslys.„Þetta er ekki algengt. Það eru um 20 þúsund til 25 þúsund stökk á ári hverju, þannig að það er tilviljun að tvö dauðsföll eigi sér stað með svo skömmu millibili,“ segir Larsen.„Þetta er virkilega sorglegt.“ VAR REYNDUR FALLHLÍFARSTÖKKVARI Maðurinn sem lést í