Afsprengi nýnasistaflokks þriðji stærsti flokkurinn

Harðlínuflokkur á hægri vængnum, sem er afsprengi nýnasistaflokks á Grikklandi, jók fylgi sitt töluvert í þingkosningum á Kýpur í gær. Sérfræðingur segir úrslitin marka endalok 50 ára valdatíðar hinn hefðbundnu flokka.Úrslit kosninganna voru þau að mið-hægri flokkurinn DISY fékk rúm 27% atkvæða og Verkamannaflokkurinn, sem er í raun kommúnistaflokkur, hlaut tæp 24%. Þriðji stærsti flokkurinn er ELAM, þjóðernissinnaður flokkur sem er afsprengi gríska nýnasistaflokksins Gullin dögun, sem hefur verið bannaður þar í landi. Hann fékk tæplega 11%. Megináhersla þeirra í kosningunum var á takmörkun á komu innflytjenda.Nokkrir nýir flokkar náðu inn á þing, meðal annars flokkurinn Beint lýðræði, sem Fidias Panayioutu áhrifavaldur á Youtube stýrir en hann mætti alltaf með trúðsnef á kosningafundi. Au
Afsprengi nýnasistaflokks þriðji stærsti flokkurinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd