Tékknesk stjórnvöld hafa hætt við áform um upptöku evru í bili. Ákvörðunin er ekki síst sögð pólitísk, frekar en að vera aðeins tekin á efnahagslegum forsendum.Þegar Tékkland gekk í Evrópusambandið árið 2004 skuldbatt það sig til þess að taka á endanum upp evru, án þess þó að tiltaka sérstakan tímaramma. Núverandi gjaldmiðill, koruna, var tekinn upp árið 1993 þegar Tékkóslóvakíu var skipt upp í tvö ríki.Í rúma tvo áratugi hafa stjórnvöld svo skilað árlegri skýrslu um þróun efnahagsmála og hvernig hagkerfið stendur samanborið við evrusvæðið - með fyrirhugaða upptöku evru í huga.Andej Babis forsætisráðherra sem tók við völdum á ný eftir kosningar í haust, tilkynnti hins vegar á dögunum að slíku verði hætt á þeim rökum að upptaka evru verði hagkerfinu ekki til bóta og betra sé að hafa sjálfst