Viðræður um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur standa enn yfir.Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, hefur öll spil á hendi sér varðandi myndun nýs meirihluta í borginni.Prófessor í stjórnmálafræði segir ekki óeðlilegt að viðræður um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur taki tíma.Mikilvægt sé að ákvörðun um samstarf sé vel ígrunduð. MIKILVÆGT AÐ HILDUR GEFI SÉR TÍMA „Þetta er mikilvæg og erfið ákvörðun fyrir Hildi, í hvora áttina hún eigi að halla sér. Og það er mjög líklegt að hver sem niðurstaðan verður að þá muni einhverjir Sjálfstæðismenn verða óánægðir með niðurstöðuna,“ segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði.Hildur er enn að meta stöðuna eftir fundi sína með oddvitum Viðreisnar, Framsóknarflokks og Miðflokks.Samkvæmt heimildum fréttas