Ef mælingin núna í maí, sú fyrsta af þremur þangað til peningastefnunefnd kemur næst saman, verður yfir fimm prósent þá mun það halda annarri vaxtahækkun í ágúst opinni, að mati aðalhagfræðings Kviku. Sé litið á meðalspá fimm greinenda þá er útlit fyrir að tólf mánaða takturinn lækki eilítið en verði eftir sem áður rúmlega fimm prósent.