Verkfall háseta og bátsmanna hófst á hádegi

Ótímabundið verkfall háseta og bátsmanna í Sjómannafélagi Íslands (SÍ) á skipum Eimskips, Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi, hófst í morgun. Búist er við að verkfallið hafi áhrif á siglingaáætlun og þjónustu félagsins.Í tilkynningu Eimskips segir að félagið hafi unnið markvisst að því að gera ráðstafanir í kringum mögulegt verkfall til að lágmarka truflanir á þjónustu við viðskiptavini eins og kostur er. Þá sé hafnarstarfsemi og önnur starfsemi félagsins í eðlilegum farvegi.Viðræður um laun og kjör háseta og bátsmanna standa enn yfir með milligöngu ríkissáttasemjara. Í síðustu viku náðist samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Eimskips, og Sjómannafélagsins vegna hafnarverkafólks í Sundahöfn og var boðuðu verkfalli þar aflýst.
Verkfall háseta og bátsmanna hófst á hádegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd