„Þetta er í fyrsta skipti sem ég er með alvöru stúdíó, svo mér líður eins og þetta sé svona mesta heima sem við höfum átt,“ segir Daði Freyr þar sem hann situr í nýja heimastúdíóinu sínu í Hveragerði.Fyrr í mánuðinum sendi hann frá sér nýja plötu, Too Much Not Enough, og svo er hann að undirbúa tónleikaferð um landið í sumar.„Ég er búinn að vera mjög mikið að vinna einn, semja allt einn og taka allt upp einn,“ segir Daði en hann ákvað að breyta um kúrs á nýju plötunni. „Nýja platan er í fyrsta skipti þar sem ég hleypi fólki inn í ferlið.“Þú getur horft á áhugavert viðtal við Daða og lifandi flutning á laginu Don't Wanna Talk í spilaranum hér að ofan.Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu, öll fimmtudagskvöld á RÚV, og í spilaranum þegar þér hentar.