Samningur ekki í augsýn í Íran

Frá Tehran, höfuðborg Írans, í morgun.EPA / ABEDIN TAHERKENAREHSamningur milli Írana og Bandaríkjamanna um stríðslok í Íran er ekki í augsýn þó að samist hafi um stóran hluta ágreiningsefna. Þetta sagði Esmail Baghaei talsmaður utanríkisráðuneytis Íran á blaðamannafundi í morgun.Marko Rubio hafði sagt í gærkvöld að von væri um samning í dag. Donald Trump gaf þó þau skilaboð að flýta sér hægt í samningsgerðinni - tíminn ynni með Bandaríkjamönnum. Hann sagði á Truth Social í morgun að samningur við Íran yrði annaðhvort frábær og þýðingarmikill, eða að það yrði enginn samningur.
Samningur ekki í augsýn í Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd