Páfi varaði við vopnvæðingu gervigreindar

Leó páfi leggur í nýju páfabréfi sem gefið var út í morgun mikla áherslu á að hægja á þróun og uppgangi gervigreindar. Þetta er fyrsta páfabréf Leós fjórtánda, en hann sagði í upphafi embættistíðar sinnar að í gervigreind fælist ein helsta áskorun mannkynsins.Í páfabréfinu, sem ber yfirskriftina Magnifica Humanitas, eða Hið stórfenglega mannkyn, segir meðal annars að varast beri að vopnvæða tæknina þar sem keppst væri að því að ná yfirburðum í krafti síöflugri algóritma og umfangsmeiri gagnasöfnunar.Aldrei ætti að leyfa tækni að taka ákvarðanir um líf og dauða.Af-vopnvæðing gervigreindartækni þyrfti ekki að standa framförum fyrir þrifum, heldur þyrfti einfaldlega að koma í veg fyrir að tæknin næði yfirráðum yfir mannkyni.Páfi bætti við einni sneið til bandarískra yfirvalda og sagði að kenn
Páfi varaði við vopnvæðingu gervigreindar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd