Shakira setur tóninn fyrir HM í fótbolta með lagi mótsins

Kólumbíska stórstjarnan Shakira hefur gefið út opinbert lag heimsmeistaramótsins í fótbolta sem fram fer í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Lagið heitir Dai Dai og er unnið í samstarfi við nígeríska tónlistarmanninn Burna Boy.Shakira, sem fagnar 50 ára afmæli á næsta ári, hefur áður flutt lag keppninnar. Hún söng meðal annars lagið Waka Waka (This Time for Africa) fyrir heimsmeistaramótið í Suður-Afríku árið 2010 sem varð eitt þekktasta HM-lag sögunnar. Þá flutti hún einnig lagið La La La (Brazil 2014) fyrir HM í Brasilíu árið 2014.Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst 11. júní og stendur yfir til 19. júlí. Í því eigast 48 landslið við í tólf fjögurra liða riðlum.
Shakira setur tóninn fyrir HM í fótbolta með lagi mótsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd