Svisslendingar kjósa um hvort takmarka eigi íbúafjölda

Svisslendingar ganga að kjörborðinu í næsta mánuði til að greiða atkvæði um umdeilt frumvarp sem miðar að því að takmarka íbúafjölda landsins við tíu milljónir. Til þess að frumvarpið hljóti brautargengi þarf tillagan stuðning bæði meirihluta kjósenda og meirihluta kantóna.Tillagan var sett fram af Svissneska þjóðarflokknum (SVP) sem lengi hefur talað fyrir róttækari stefnu af hálfu stjórnvalda í málum innflytjenda. Rúmlega 27% íbúa Sviss voru með erlent ríkisfang undir lok síðasta árs. FLESTIR STJÓRNMÁLAFLOKKAR LEGGJAST GEGN FRUMVARPINU Samkvæmt opinberum spám gæti íbúafjöldi Sviss náð yfir tíu milljónum í kringum 2050 en að mati þjóðarflokksins hefur ört vaxandi íbúafjöldi á undanförnum árum leitt til húsnæðisskorts, hækkandi leiguverðs, umferðartafa og aukins álags á heilbrigðis- og
Svisslendingar kjósa um hvort takmarka eigi íbúafjölda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd