Stjúpur og fjólur það heitasta

Það er búið að vera óvenju kalt bæði í vor og í byrjun sumars þar til núna. En hvernig getum við flýtt sumrinu með því að setja strax út sterkar og fallegar plöntur og blóm? Nokkrar tegundir eru þekktar fyrir að þola vel íslenskt vor og kalda sumarbyrjun. Við fórum austur fyrir fjall til Hveragerðis og Selfoss og ræddum við plöntusérfræðinga eins og Lindu Maríu Traustadóttur í Flóru garðyrkjustöð í Hveragerði og svo rifjuðum við upp hvernig Auður Ingibjörg Ottesen á Selfossi nennir aldrei að bíða eftir sumarblómunum og er komin með litríkan garð snemma á sumrin.
Stjúpur og fjólur það heitasta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd