Boeing-flugvélaframleiðandinn hefur að nýju hafið undirbúning að smíði nýrrar tegundar farþegaþotu sem ætlað er að brúa bilið í stærðarflokki flugvéla á milli 737 MAX og 787 Dreamliner. Miðað við lýsingar virðist Boeing stefna að smíði flugvélar sem svipa mun til 757-þotunnar í stærð, útliti og flugdrægi.