Yfir 100 ásakanir um ofbeldi og nauðganir í frönskum skólum

Lögreglan í París rannsakar yfir 100 ásakanir um illa meðferð, líkamlegt ofbeldi og nauðganir á börnum allt niður í þriggja ára aldur í frönskum grunn- og leikskólum. Grunur leikur á að skólaliðar hafi beitt börnin ofbeldi í hádegishléum, hvíldartímum og eftir skóla.The Guardian greinir frá því að rannsóknin nái yfir 84 leikskóla, 20 grunnskóla og 10 dagvistunarheimili. Hópar foreldra segja að þeir hafi barist fyrir því árum saman að ásakanir yrðu teknar alvarlega. Foreldrar segja að mistök hafi verið gerð í ráðningarferli skólaliða og eftirliti með þeim, sem hafi gert þeim kleift að halda áfram misnotkuninni.Skólaliðarnir hafa umsjón með börnunum í hléum, hvíldartíma þeirra og í frístund og verja jafnvel lengri tíma með þeim en kennarar. Þeir hafa ekki fengið sérstaka þjálfun eða menntun
Yfir 100 ásakanir um ofbeldi og nauðganir í frönskum skólum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd