Eyrbekkingurinn Jón Ingi Sigurmundsson hefur verið að mála meira og minna alla sína ævi, haldið fjöldann allan af málverkasýningum og selt mikið af myndum. Þrátt fyrir að vera orðinn 92 ára heldur hann ótrauður áfram að mála.Þrátt fyrir að Jón Ingi Sigurmundsson á Selfossi sé orðinn 92 ára gefur hann ekkert eftir í málaralistinni. Hann var að opna málverkasýningu á Eyrarbakka með 56 verkum.Ertu ekki stoltur af þessu?„Jú, mjög, ég er ánægður með þennan sal, hann er mjög góður, gott að sýna hérna,” segir Jón Ingi.Þú ert enginn nýgræðingur í málaralistinni, ertu ekki búin að mála lengi?„Jú, ég er búinn að mála í 50 til 60 ár. Mér líður bara mjög vel og heilsan er góð. Ég vona að ég sé ekkert að gefa eftir,” segir Jón Ingi.Eiginkona Jóns Inga, Edda Björg Jónsdóttir, kveðst vera mjög stolt af s