Bensínstöðvum fækkar hratt

Bensínstöðvum fækkar hratt í Noregi og frá 2020 hefur að meðaltali tíu bensínstöðvum verið lokað í hverjum mánuði, eða 430 bensínstöðvum samkvæmt frétt Nettavisen.Norska ráðgjafafyrirtækið Menon Economics áætlar að aðeins 730 bensínstöðvar verði í Noregi árið 2034. Þetta er mikil fækkun frá þeim 1.200 stöðvum sem voru í landinu árið 2012. Og það er af sem áður var, en alls voru um 4.000 bensínstöðvar í Noregi árið 1969.Margir aka vissulega enn um á bensín- og dísilbílum en nú er svo komið að nær allir nýskráðir bílar eru rafbílar.Nettavisen vísar í tölur frá norsku hagstofunni þar sem fram kemur að í lok síðasta árs voru 677.625 bensínbílar skráðir í Noregi, 950.404 dísilbílar og 945.185 rafbílar. Þá voru skráðir 208.467 endurhlaðanlegir hybrid-bílar og 162.449 óendurhlaðanlegir hybrid-bíl
Bensínstöðvum fækkar hratt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd