Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 03:50 í nótt.Google map / Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.Jarðskjálfti af stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 03:50 í nótt. Um 25 eftirskjálftar hafa fylgt samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.Jarðskjálftar af þessari stærðargráðu eru nokkuð reglulegir í eldstöðinni. Síðast varð skjálfti af sömu stærð í Bárðarbungu þann 31. mars.