Hundruð fanga mótmæla í fangelsi

Hundruð fanga tóku yfir Barinas-fangelsið í vestur Venesúela í gær. Fangarnir segja að þeir hafi orðið fyrir pyndingum og krefjast þess að fangelsisstjórinn verði rekinn. Fangarnir komust upp á þak fangelsins þar sem þeir kveiktu í dýnum og rúmfötum og kölluðu „Ekki meiri pyndingar.“Þeir hengdu upp skilaboð sem á stóð „S.O.S“ og „Þeir eru að pynda okkur.“ Vopnaðir verðir hafa umkringt Barinas-fangelsið sem er staðsett um fimm hundruð kílómetra frá Caracas. Um 1200 karlmenn og 100 konur eru í fangauppreisninni í Barinas.Tugir aðstandenda fanganna fylgjast með og bíða skammt frá fangelsinu. Þeir segja að margir fangar séu slasaðir. Mannúðarsamtök hafa gagnrýnt aðbúnað og meðferð fanga í Venesúela árum saman. Þau segja fangelsin yfirfull, matur sé af skornum skammti og heilbrigðisaðstoð fyrir
Hundruð fanga mótmæla í fangelsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd