Drengurinn fundinn heill á húfi

Tveggja ára drengur sem leitað var að í Svíþjóð í gær er fundinn heill á húfi. Hann var nokkuð kaldur en við góða heilsu þegar hann fannst samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Drengurinn hvarf við sveitabæ stuttu fyrir hádegi í gærdag í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð.Umfangsmikil leit var gerð að drengnum og tóku björgunarsveitir, lögregla með leitarhunda og hermenn þátt í leitinni.Lögreglan hefur ekki gefið upp hvort hvarf drengsins teljist saknæmt.
Drengurinn fundinn heill á húfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd