Fuglar og menn hlaut Einarinn – Heimkoman fékk Ljóskastarann

Heimildamyndin Fuglar og menn hlaut Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar, hátíðar íslenskra heimildamynda í ár. Leikstjórn myndarinnar er í höndum Ingvars Þórðarsonar, Ragnars Axelssonar og Mika Kaurismaki og Ingvar sá auk þess um framleiðslu.Í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar kemur fram að myndin fjalli um hjónin Ólaf Aðalsteinsson og Jóhönnu Óladóttur sem hafa í yfir tvo áratugi helgað líf sitt uppbyggingu og verndun æðarvarps í hinum afskekkta Loðmundarfirði á Austfjörðum. Í firðinum, sem lagðist í eyði fyrir hálfri öld, hafa þau byggt upp eitt öflugasta varpsvæði landsins við krefjandi aðstæður.Heimildamyndin Heimkoman hlaut Ljóskastarann, dómnefndarverðlaun Skjaldborgar, fyrir mynd í fullri lengd. Leikstjórar myndarinnar eru Helgi Felixson og Titti Johnson, og He
Fuglar og menn hlaut Einarinn – Heimkoman fékk Ljóskastarann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd