Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning.