Umferð um Hvalfjarðargöng og hjáleið um Hvalfjörð hefur gengið vel þessa fyrstu stóru ferðahelgi ársins, samkvæmt lögreglunni á Vesturlandi. „Það var mjög þétt umferð seinni partinn í dag og til hálf tíu en nú er farið að draga úr umferðinni. Fólk er farið að stíla inn á að fara fyrr af stað til að ná göngunum,“ segir Ingþór Guðjónsson, varðstjóri Lögreglunnar á Vesturlandi. „Svo virðist sem auglýsingar og merkingar hafi skilað sér. Fólk tekur þessum með stökustu ró, og það er bara einn og einn sem gleymir sér,“ segir Ingþór.Hvalfjarðargöng hafa verið lokuð frá klukkan 21:30-06:00 undanfarnar vikur frá sunnudegi til föstudags vegna endurnýjunar ljósabúnaðar. En það styttist í verklok og áætlað er að verkinu ljúki á föstudag.Það má reikna með mikilli umferð á morgun, 2. í hvítasunnu. Hvalfj