Talinn af í yfir þrjú ár en snéri til baka á lífi

Þegar Nazar Daletskyi kom til baka úr haldi Rússa ásamt fjölda stríðsfanga í febrúar var enginn úr fjölskyldunni sem beið hans. Þau héldu að hann væri látinn.2023 fékk fjölskylda hans tilkynningu um að hann verið drepinn í árás á bílalest í Kupiansk árið áður. Það hafi verið staðfest með DNA-rannsókn.Móðir hans hafði þó efasemdir því að hún hafði fengið tilkynningu um að Rússlandsher héldi honum í fangelsi. Þetta var í byrjun stríðsins og þær reglur ekki komnar að hermenn gæfu DNA-sýni áður en þeir væru sendir á víglínuna. „Það tekur mikið á að jarða son sinn. Að fara í kirkjugarðinn, biðja fyrir hinum látnu og hann svo á lífi. Það er erfitt,“ sagði móðir Daletskyis í viðtali á dögunum.Allan þennan tíma var Daletskyi í haldi Rússa. Fjölskyldan fékk sent lík, sem var brennt og ekki hægt að
Talinn af í yfir þrjú ár en snéri til baka á lífi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd