Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa hafið formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði að því er kemur fram í tilkynningu.Þar segir að vinna við málefnasamning sé þegar hafin og stefnt að því að ljúka viðræðum hratt. Markmiðið er að kynna málefnasamning nýs meirihluta þriðjudaginn 26. maí.„Aðilar leggja áherslu á gagnkvæmt traust og trúnað á meðan á viðræðunum stendur,“ segir í tilkynningunni sem Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, og Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingar, skrifa undir.Í vikunni slitnaði upp úr viðræðum milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar vegna þess sem Sjálfstæðismenn sögðu vera trúnaðarbrest af hálfu oddvita Framsóknar.